Hlýjar móttökur og persónuleg leiðsögn í hvetjandi umhverfi
Hópþjálfun fyrir konur í æfingastöð GoMove: Fjölbreyttir 40-45 mínútna tímar þar sem hefðbundnum æfingum (til dæmis deadlift, hnébeygja og planki) er blandað saman við óhefðbundnar æfingar (til dæmis animal flow og ketilbjölluflæði) til að byggja upp alhliða styrk, bæta liðleika og auka úthald.
Í þessari þjálfun færð þú persónulega nálgun og hvetjandi leiðsögn frá þjálfurunum okkar. Þeir sýna þér hvernig þú getur fengið meira úr öllum æfingunum þínum og þar með öðlast aukið sjálfstraust þegar kemur að hreyfingu.
Þjálfarar: Indíana (yfirþjálfari), Erla Rut, Ingibjörg, Kristín, Finnur Orri og Hulda.



