Skráðu þig núna í FRÍAN kynningartíma föstudaginn 21. ágúst kl. 14:30 til að fá fílinginn fyrir æfingunum og kynnast Finni og Arnóri sem leiða námskeiðið.
6 vikna námskeið fyrir 17-19 ára stráka í æfingastöð GoMove.
Námskeið fyrir menntaskólastráka sem vilja æfa í hvetjandi hóp undir góðri leiðsögn og verða sterkari – bæði líkamlega og andlega.
Á námskeiðinu verður áhersla á:
- Góðar æfingar og markvissa líkamlega styrktarþjálfun.
- Að læra undirstöðuatriði í styrktarþjálfun til að byggja grunn fyrir framtíðina.
- Persónulegan vöxt og sjálfstraust.
- Aga, samvinnu og góðan hópanda.
- Að ýta aðeins út fyrir þægindarammann og hafa gaman í leiðinni.
50 mín æfingar miðvikudögum kl. 15:30 og föstudögum kl. 14:00 í æfingastöð GoMove á Kársnesi.
Aðeins 16 geta skráð sig til að tryggja gæði og persónulega leiðsögn.
Þjálfarar námskeiðsins.
Finnur Orri er annar eigenda GoMove og yfirþjálfari í Karlaþjálfun stöðvarinnar. Bakgrunnur hans kemur úr fótbolta þar sem hann spilaði upp alla yngri flokka Breiðabliks og í efstu deild í 17 ár með Breiðablik, Lilleström, KR og FH ásamt því að hafa spilað fyrir yngri landslið Íslands. Finnur leggur áherslu á gæði fram yfir magn í sinni þjálfun og að æfingarnar séu gerðar vel til þess að auka líkur á árangri og draga úr meiðslahættu. Finnur nýtir sér reynslu sína úr hópíþróttum í sinni þjálfun og nær hann að búa til jákvætt, skemmtilegt og hvetjandi andrúmsloft á æfingum.
Arnór Sveinn býr yfir víðtækri reynslu í vinnu með ungmennum, bæði sem þjálfari hjá meistaraflokki Breiðabliks og sem kennari í grunn- og menntaskólum. Hann hefur sjálfur spilað í meistaraflokki og fyrir A-landslið karla, og leggur ríka áherslu á heildræna nálgun á heilsu og hugarfar.
Styrktarþjálfun / Hugarfar / Félagsfærni / Góður andi