Mömmuþjálfun GoMove á Kársnesi.
Viðhaltu styrk eða byggðu þig skynsamlega upp eftir meðgöngu í hlýlegu umhverfi.
FULLT í alla hópa í október. Skráðu þig núna á biðlista fyrir nóvember tímabil sem hefst 3. og 4. nóvember
-

Indíana
Stofandi, eigandi og yfirþjálfari
GoMove varð til í janúar 2018 þegar Indíana byrjaði með fyrstu hópana sína í þjálfun í World Class. Frá upphafi hefur Indíana lagt áherslu á gæði og gleði í sinni þjálfun
Indíana er handboltastelpa í grunninn en hún spilaði með Stjörnunni í Garðabæ í um 15 ár. Hún er með B.A. grunn í lögfræði og kláraði markþjálfunarnám eftir það. Hún hefur sérhæft sig í ketilbjöllu-styrktarþjálfun og sótt sér ýmis réttindi á því sviði. Indíana er líka með kennararéttindi í Animal Flow.
-

Finnur Orri
Eigandi og þjálfari
It all begins with an idea. Maybe you want to launch a business. Maybe you want to turn a hobby into something more.
-

Erla Rut
Þjálfari
It all begins with an idea. Maybe you want to launch a business. Maybe you want to turn a hobby into something more.
-

Ingibjörg
Þjálfari
-

Kristín Helga
Þjálfari
-

Hulda
Þjálfari
Tímasetningar og það sem er innifalið.
Fjórir hópar eru í boði:
09:30 mánudaga + miðvikudaga
10:30 mánudaga + miðvikudaga
11:30 mánudaga + miðvikudaga
13:10 þriðjudaga + fimmtudaga
Við skráningu velur þú þér þinn hóp og þá tímasetningu sem hentar þér best, en ef þú kemst ekki á þeim tíma einhverja daga er í boði að mæta á öðrum tímum í samráði við þjálfara.
+ Barnlausir Tabata tímar á laugardögum.
+ Open Gym aðgangur alla daga. Í boði að taka börnin með sér í Open Gym á föstudögum og sunnudögum frá 9-13 og þriðjudögum og fimmtudögum frá 2-4 ávallt á ábyrgð iðkanda.
+ Aðgangur að Online æfingabanka GoMove fylgir líka með áskrift svo þú getur æft heima eða tekið Online æfingar í Open Gym ef þú missir úr tíma eða vilt æfa oftar.
+ Aukaæfing send út 1x í viku til að taka í Open Gym, vinsælt er hjá mömmunum að mæta á föstudögum fyrir hádegi í Open Gym og taka hana.
“Persónuleg nálgun og notalegt andrúmsloft, fannst sérstaklega þægilegt að mæta með strákinn og aldrei neitt stress í kringum það sem var rosalega dýrmætt.”
“Gæti ekki mælt meira með mömmutímunum. Hlakkaði til að mæta á hverja einustu æfingu! Bæði skemmtilegar og krefjandi og auðvelt að skala í takt við dagsformið. Fann strax mikinn mun á styrk og úthaldi eftir fyrstu vikurnar.”
“Þjálfararnir æði og útskýra mjög vel og eru til staðar ef maður þarf hjálp. Tala líka fallega til manns og minna á að hlusta á líkamann og hvetja mann á sama.”
“ELSKA æfingarnar og nálgunina í æfingum. Virkilega góðar alhliða styrktaræfingar og fíla hvernig áherslan er frekar á gæði en hraða.”