Spurt & Svarað

Hvað bjóðið þið upp á?

1

Við bjóðum upp á þjálfun bæði í stöðinni okkar á Kársnesi og líka netþjálfun. Til þess að gerast meðlimur skráir þú þig einfaldlega í þjálfun eða á námskeið sem þú hefur áhuga á.

Hér á heimasíðunni eru allar upplýsingar um þjálfun og námskeið sem við bjóðum upp á.

Þér er líka velkomið að senda okkur póst á gomove@gomove.is ef þú hefur spurningar um þjálfun.


Hvernig virka áskriftir hjá ykkur?

2

Það er aðeins misjafnt eftir því hvaða þjálfun þú skráðir þig í og koma upplýsingar fram á skráningarsíðu fyrir hverja þjónustu.

Til dæmis er 8 vikna binditími (2 tímabil) í hópþjálfun fyrir konur eða karla. Enginn binding er í Mömmuþjálfun á áskriftum og ekki heldur í netþjálfun. En þjónusturnar eiga allar sameiginlegt að það er 10 daga uppsagnarfrestur sem er mikilvægt að virða.


5

6

7

Hvernig segi ég upp áskrift?

3

Þú sendir tölvupóst á uppsogn@gomove.is. Ath að uppsagnarfrestur á áskrift er 10 dagar og telst uppsögn móttekin daginn sem uppsögn er send í tölvupósti. Ef póstur er sendur þegar minna en 10 dagar eru í næstu endurnýjun fer endurnýjunin fram og rennur áskriftin síðan út þegar því tímabili lýkur.


Hvernig virkar Open Gym?

4

Hvernig skrái ég mig í opna tíma?

Hvar nálgast ég kvittanir fyrir stéttarfélag?

Iðkendur sem eru skráðir í þjálfun í stöðinni hjá okkur fá svokallaðan ‘‘Open Gym aðgang’’ en þá geta iðkendur mætt sjálfir og æft. Enginn þjálfari er á staðnum heldur er þetta tækifæri fyrir iðkendur til að mæta og nýta sér aðstöðuna undan hefðbundinnar tímatöflu.

Fyrirkomulagið snýst um traust á milli eigenda og iðkenda stöðvarinnar. Iðkendur verða að hugsa vel um stöðina og ganga vel frá eftir sig þegar Open Gym er nýtt.




Hvernig breyti ég um greiðsluleið?

Laugardagstímarnir okkar og æfingar sem eru oft aukalega á rauðum dögum eins og 17. júní eða Þorláksmessu teljast vera opnir tímar.

Þú bókar þig í opna tíma í Abler appinu og opnar skráning í tímana sólahring áður en þeir hefjast. Mikilvægt er að afbóka sig tímanlega ef þú kemst svo ekki í tímann svo að einhver sem er á biðlista missi ekki af plássi.

Lágmarksskráning í opnu tímana er almennt 8 og hámark er 24 (ath. gæti verið breytilegt eftir gerð tímans).

Abler (skráningarkerfið okkar) gefur út allar kvittanir. Sjáðu leiðbeiningar hér.

Þú gerir það í Abler. Sjáðu leiðbeiningar hér.