Hatha Yoga með Eggerti Georg
Hreyfanleiki / Liðkun / Styrkur / Hugleiðsla
4 vikna námskeið hefst sunnudaginn 11. október.
75 mín tímar á sunnudögum kl. 10:00 - 11:15.
Um námskeiðið
Hatha jóga er fyrir alla sem vilja styrkja líkamann, bæta liðleika og hreyfanleika, þjálfa athyglina og skapa meiri ró í líkama og huga.
Tímarnir eru 75 mínútur og sameina alla lykilþætti Hatha jóga:
Asana (jógastöður)
Vinyasa (flæði)
Pranayama (öndunaræfingar)
Hugleiðsla
Í stað hraðs flæðis milli staða er lögð áhersla á meðvitaða og markvissa hreyfingu. Dvalið er í stöðunum, bæði í virkum og passívum stöðum og því getur iðkunin verið líkamlega krefjandi.
Unnið er með styrk, jafnvægi, liðleika og hreyfanleika á sama tíma og athyglin er þjálfuð í gegnum ryþmíska öndun og hugleiðslu. Til að hjálpa iðkendum með það verður spiluð músík sem er sérhönnuð fyrir jóga og kemur frá Vikasa Yoga, einum af virtustu jógaskólum í Tælandi.
Kennarinn
Eggert hefur stundað jóga í einhverri mynd í um það bil 15 ár, en hann byrjaði að iðka hefðbundið jóga af meiri alvöru árið 2023. Á þeim tíma var hann fyrst og fremst í leit að liðleika sem mótvægi við kraftlyftingum en áhuginn óx fljótt út fyrir það og þá aðallega að heimspekinni sem tilheyrir jógafræðunum.
Í febrúar 2025 lauk hann jógakennaranámi hjá Vikasa Yoga í Tælandi. Síðan þá hefur hann kennt jóga – bæði einstaklingum og hópum á mismunandi stöðum. Hann leggur áherslu á tengingu við líkamann og þá sérstaklega hve öflugt tól öndunin er í virkri hreyfingu. Það verður svo hægt læra að yfirfæra þessa hluti yfir á daglegt líf.